Lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar fór fram í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem tapaði fyrir Auxerre, 2-0.
Lille var búið að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir lokaumferðina og ekki mikil pressa á þeim á meðan Auxerre þurfti sigur til að bjarga sér frá falli.
Lassine Sinayoko sá til þess að bjarga liðinu með tveimur mörkum í sitt hvorum hálfleiknum og mun liðið spila áfram í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain töpuðu fyrir nágrönnum sínum í Paris FC, 2-1.
Bradley Barcola kom PSG yfir snemma í síðari hálfleiknum, en á síðasta stundarfjórðungi leiksins skoruðu Paris FC menn tvö mörk frá varamanninum Alimani Gory og þar við sat.
Skemmtilegasti leikur kvöldsins var klárlega 5-4 sigur Strasbourg á Mónakó. Þrír leikmenn skoruðu tvennu, en Martial Godo og Sebastian Nanasi gerðu það fyrir Strasbourg á meðan Lamine Camara gerði tvennu fyrir Mónakó. Ansu Fati skoraði einnig fyrir Mónakó, en Paul Pogba var ekki í hópnum vegna meiðsla.
PSG tók toppsætið með 76 stig, Lens sem vann Lyon 4-0, hafnaði í öðru sæti með 70 stig, Lille í 3. sæti með 61 stig og þá tók Lyon fjórða og síðasta Meistaradeildarsætið með 60 stig, einu meira en Marseille sem hafnaði í 5. sæti.
Nantes og Metz féllu úr deildinni en Nice hafnaði þriðja neðsta sæti og fer því í umspil um áframhaldandi veru í deildinni.
Úrslit og markaskorarar:
Brest 1 - 1 Angers
1-0 Romain Del Castillo ('55 )
1-1 Amine Sbai ('60 )
Lyon 0 - 4 Lens
0-1 Wesley Said ('20 )
0-2 Wesley Said ('32 )
0-3 Florian Sotoca ('45 )
0-4 Florian Thauvin ('54 )
Nice 0 - 0 Metz
Lorient 0 - 2 Le Havre
0-1 Abdoulaye Faye ('33 , sjálfsmark)
0-1 Bamba Dieng ('45 , Misnotað víti)
0-2 Issa Soumare ('62 )
Lille 0 - 2 Auxerre
0-1 Lassine Sinayoko ('32 )
0-2 Lassine Sinayoko ('90 )
Strasbourg 5 - 4 Monaco
0-1 Lamine Camara ('10 )
1-1 Martial Godo ('34 )
1-2 Lamine Camara ('42 )
1-3 Ansu Fati ('45 )
1-4 Ismael Doukouire ('55 , sjálfsmark)
2-4 Diego Moreira ('58 )
3-4 Sebastian Nanasi ('61 )
4-4 Sebastian Nanasi ('72 )
5-4 Martial Godo ('85 )
Nantes 0 - 0 Toulouse
Paris FC 2 - 1 Paris Saint Germain
0-1 Bradley Barcola ('50 )
1-1 Alimami Gory ('76 )
2-1 Alimami Gory ('90 )
Marseille 3 - 1 Rennes
1-0 Pierre-Emile Hojbjerg ('2 )
2-0 Amine Gouiri ('10 )
3-0 Pierre Emerick Aubameyang ('55 )
3-1 Esteban Lepaul ('84 )



