Argentínski þjálfarinn Diego Simeone ætlar að vera áfram með Atlético Madríd á næsta tímabili en þetta sagði hann í viðtali eftir næst síðasta deildarleik tímabilsins í gær.
Simeone hefur þjálfað Atlético frá 2011 og unnið átta titla á þeim tíma sem er sérstaklega merkilegt þegar horft er í það að hann er að keppast við Barcelona og Real Madrid.
Tvisvar hefur liðið unnið spænsku deildina og konungsbikarinn einu sinni ásamt því að hafa unnið Evrópudeildina í tvígang.
Á síðustu vikum hefur verið rætt um framtíð Simeone hjá Atlético og möguleikann á því að hann vilji reyna fyrir sér annars staðar, en það er ekki í myndinni í augnablikinu.
Hann er staðráðinn í að klára samning sinn sem gildir út næstu leiktíð.
„Í allri hreinskilni þá er ég byrjaður að hugsa um næsta tímabil. Ég er að hugsa um sjálfan mig í leiðinni, en eina sem ég get sagt er að ég mun halda áfram. Ég er þegar byrjaður að hugsa um hvernig best sé að nálgast næsta tímabil,“ sagði Simeone.
Atlético vann Girona, 1-0, í síðasta heimaleiknum í gær, en Atlético er búið að tryggja sér meðal fjögurra efstu og á þá möguleika að taka þriðja sætið af Villarreal í lokaumferðinni.




