Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 20:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefan Ljubicic átti ekki alveg sinn besta dag fyrir framan markið.
Stefan Ljubicic átti ekki alveg sinn besta dag fyrir framan markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við byrja leikinn vel og fyrri hálfleikurinn var heilt yfir vel spilaður hjá okkur. Við skorum eitt gott mark og vorum ofan á, en í seinni hálfleik jafna þeir snemma úr horni og það var gusa í andlitið," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Stjarnan

Keflvíkingar spiluðu vel í leiknum og fengu sannarlega færi til að klára þetta.

„Mér fannst við vera með nokkuð góð tök á þessu. Svo kemur bara horn. Þeir eru sterkir í föstum leikatriðum og eru með gott lið. Þeir eru búnir að tapa fjórum í röð og seldu sig dýrt hérna. Kannski er jafntefli sanngjörn niðurstaða."

„Það er jákvætt að við séum að skapa færi. Stundum vill hann bara ekki inn. Ef við höldum svona áfram þá hljóta stigin að koma í kjölfarið."

Keflavík hefur ekki enn unnið á heimavelli en HS Orku völlurinn á að vera gryfja fyrir þá. „Ekki meiri gryfja en það að við höfum ekki unnið leik hérna í fyrstu þremur heimaleikjunum. Það hlýtur að koma að því."

Stefan Alexander Ljubicic fékk mörg færi fyrir framan markið en þetta var ekki alveg hans dagur. Hann þarf ekki að taka neinar aukaæfingar til að klára færin. „Hann þarf að halda áfram því sem hann er að gera og boltinn dettur inn næst."

Ljubicic er stór og stæðilegur sóknarmaður en það er mikið togað og ýtt í hann. „Ég get verið sammála með það. Mér finnst flestir fá að komast upp með mikið á móti honum, toga í hann og halda utan um hann. Það eru kannski Keflavíkurgleraugun sem ég horfi á það með, en mér finnst hann eiga að fá fleiri aukaspyrnur."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan þar sem Haraldur Freyr ræðir meira um byrjunina á mótinu.
Slapp