Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 22:25
Sigurjón Árni Torfason
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Mar
Hallgrímur Mar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA vann góðan 2-1 sigur á FH í dag Í Kaplakrika í Bestu deild karla. Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, var ánægður með sigurinn í dag í erfiðum leik.

Lestu um leikinn: FH 1 -  2 KA

„Bara virkilega mikilvægur sigur fyrir okkur, þriðji leikur í röð, bara mjög ljúft, sérstaklega eftir ömurlega viku þar sem við duttum úr bikarnum. Það var gott að svara þessu svona þó þetta hafi verið erfitt."

Hallgrímur Mar er einn af lykilmönnum KA hann hefur verið að glíma við meiðsli í upphafi tímabils.

„Ég er náttúrulega búinn að missa úr eiginlega þremur leikjum en heilt yfir er ég búinn að vera fínn. Mér finnst ég svona loksins vera kominn í eitthvað stand í dag og fannst ég geta hlaupið almennilega. Ég er búinn að vera að díla við mjöðmina og búinn að vera smá svona kominn aftur af stað. En ég er bara mættur núna."

Eftir a Hallgrímur Mar kom úr meiðslum hefur KA unnið 3 leiki í röð í Bestu deild karla.

„Við lögðum okkur fram í dag sem skilar alltaf, á móti Þór lögðum við okkur allir fram, en við áttum reyndar slakan leik á móti ÍBV en unnum hann. Hver sigur gefur eitthvað meira sjálfstraust, þannig að þú veist, þetta er bara, þetta er vonandi gefur góð fyrirheit fyrir framhaldið," segir Hallgrímur.
Slapp
banner