Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 21:41
Sölvi Haraldsson
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er ekki hægt að vinna sætari sigra en þetta. Við fengum að smakka á því að vera á vitlausum endanum seinustu helgi. Við náðum að vera á réttum endanum núna, það er töluvert sætara.“ sagði Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, eftir dramatískan 3-2 sigur á Breiðabliki í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  2 Breiðablik

Sigurmark Vals kom alveg í blálokin, alvöru flautumark úr lokaspyrnu leiksins.

„Tilfinningin var bara geggjuð þegar ég sá boltann í netinu. Ég held að það sjáist bara hjá okkur öllum þarna. Ég á eftir að sjá þetta aftur og skoða hvernig þetta endar inni en bara virkilega sætt.“

Afhverju koma Valsmenn ekki jafn góðir út í seinni hálfleikinn og þeir voru í þeim fyrri?

„Við vorum mjög passívir þegar við komum út í seinni hálfleikinn. Það vantaði orku í liðið okkar, við vorum langt frá mönnum og hleyptum þeim alltof langt inn á okkar vallarhelming án þess að vera með pressu á þeim. Fáum svo mörkin í andlitið. Svo var þetta bara borðtennis í lokin þar sem bæði lið voru að reyna að sækja sigurinn, bara virkilega ánægður með karakterinn hjá okkur að sigla þessu heim, sérstaklega á þennan hátt að berja hann inn.“

Var sigurinn verðskuldaður hjá Valsmönnum?

„Já mér fannst það. Mér fannst í þeim köflum þegar við vorum að verjast gera það vel og svo sköpuðum við fullt af stöðum sem við fórum illa með. Þeir voru kannski meira með boltann en það er hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu en að halda í boltann.“

Viðtalið við Hólmar í heild sinni má finna í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner