Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 19:53
Brynjar Ingi Erluson
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aleksandar Linta, þjálfari Eyjamanna, var nokkuð ánægður með framlag sinna manna í 2-0 tapinu gegn Víkingi í Bestu deildinni í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  2 Víkingur R.

Eyjamenn hafa átt erfitt tímabil og ekki enn unnið leik. Liðið sýndi agaðan varnarleik gegn Íslandsmeisturunum stærstan hluta leiks og fékk sín færi en nýtti ekki.

„Við erum baráttuhundar og hötum að tapa. Við töpuðum þessu en mér fannst liðið sýna karakter og sérstaklega í fyrri hálfleik og byrjun seinni. Við fengum nokkur færi og það er erfitt að skapa mörg gegn sterku liði eins og Víkingi. Mér fannst strákarnir gera vel stærstan hluta leiksins,“ sagði Linta við Fótbolta.net.

Hann segir að síðan hann tók við Eyjamönnum hefur markmiðið verið að þétta vörnina.

„Við höfum verið að vinna í því að þétta vörnina síðan ég tók við liðinu. Kannski sérðu það meira í svona leikjum því Víkingur er með sterkt lið, en við höfum líka sýnt það á köflum í öðrum leikjum. Í dag skora þeir tvö mörk, en skapa sér ekki mörg færi.“

Linta talaði einnig um mörkin sem liðið fékk á sig.

„Við verðum að gera aðeins betur í fyrra markinu en seinna markið var mistök. Það er synd því stuttu áður fengum við tvö færi til að skora. Ef við hefðum skorað þá hefði leikurinn þróaðist öðruvísi,“ sagði hann ennfremur en hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner