Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 17. maí 2026 21:01
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Ótrúlega dýrmætt flautumark hjá Lecce - Vardy hetja Cremonese
Jamie Vardy skoraði ótrúlega mikilvægt sigurmark fyrir Cremonese
Jamie Vardy skoraði ótrúlega mikilvægt sigurmark fyrir Cremonese
Mynd: EPA
Lecce er í öruggu sæti fyrir lokaumferðina
Lecce er í öruggu sæti fyrir lokaumferðina
Mynd: EPA
Þórir Jóhann Helgason og hans menn í Lecce eru skrefi nær því að halda sér í efstu deild á Ítalíu eftir að liðið vann dramatískan 3-2 sigur á Sassuolo í kvöld. Jamie Vardy hélt pressunni á Lecce með því að tryggja Cremonese 1-0 sigur á Udinese.

Englendingurinn skoraði á 9. mínútu fyrir Cremonese sem reyndist sigurmark leiksins. Það var ekki nóg til að koma liðinu upp úr fallsæti þar sem Lecce tókst að skora sigurmark gegn Sassuolo á lokasekúndunum.

Tæp hálf mínúta var komin fram yfir uppgefinn uppbótartíma er Nikola Stulic skoraði. Svakalega dýrmætt mark hjá Lecce sem heldur liðinu í öruggu sæti fyrir lokaumferðina, stigi fyrir ofan Cremonese.

Cremonese fær Como í heimsókn í lokaumferðinni á meðan Lecce tekur á móti Genoa.

Ítalíumeistarar Inter gerðu 1-1 jafntefli við Verona. Inter komst yfir með sjálfsmarki færeyska leikmannsins Andrias Edmundsson, en Kieron Bowie jafnaði fyrir gestina undir lok leiks.

Sassuolo 2 - 3 Lecce
0-1 Walid Cheddira ('14 )
1-1 Armand Lauriente ('20 )
1-2 Walid Cheddira ('25 )
2-2 Andrea Pinamonti ('82 )
2-3 Nikola Stulic ('90 )

Atalanta 0 - 1 Bologna
0-1 Riccardo Orsolini ('78 )

Udinese 0 - 1 Cremonese
0-1 Jamie Vardy ('9 )

Inter 1 - 1 Verona
1-0 Andrias Edmundsson ('47 , sjálfsmark)
1-1 Kieron Bowie ('90 )

Cagliari 2 - 1 Torino
0-1 Rafa Obrador ('37 )
1-1 Sebastiano Esposito ('39 )
2-1 Yerry Mina ('45 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner
banner
banner