Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 19:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Siggi Höskulds: Fyrri hálfleikurinn hörmung frá A-Ö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór tapaði gegn ÍA á Akureyri í Bestu deildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  2 ÍA

„Fyrri hálfleikurinn hörmung frá A-Ö. Seinni hálfleikurinn aðeins skárri en heilt yfir hræðileg frammistaða. Ég hef greinilega ekki náð að trekkja mannskapinn nægilega vel upp í þann bardaga sem var hérna í dag," sagði Siggi.

„Fókuslevelið, enginn tók ábyrgð, unnum aldrei fyrsta bolta, einn og einn seinni bolta á móti liði sem var að koma úr 120 mínútum í miðri viku, alltof linir. Ég þarf fara í smá naflaskoðun hvernig ég nálgast næstu leiki. Ég vona að það muni ganga og ég ef trú á því. Fyrir mér er brotlending í dag að fá alla þessa sénsa og ná ekki að skora og búa til fleiri færi. Við erum alltaf í séns öðru megin og þá fáum við víti eða mark á okkur í smettið. Það er ofboðslega sárt og lélegt og lélegt af mér að vera ekki búinn að koma því í lag."

Siggi verður áhyggjufullur ef ekkert breytist.

„Ég er áhyggjufullur ef við ætlum ekki að þora að snerta andstæðinginn og ef við ætlum ekki að þora að stíga í þá og vinna návígin okkar, þá er ég mjög áhyggjufullur. Svo þurfum við að gera betur á síðasta þriðjungi, komast í betri færi og skora fleiri mörk úr þessum færum sem við erum að fá. Ég er ekkert áhyggjufullur yfir því að við verðum svona lélegir út tímabilið eins og í dag. En það þarf að vera rosaleg breyting á liðinu í næstu leikjum," sagði Siggi
Slapp
banner