Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
mánudagur 18. maí
Lengjudeild karla
þriðjudagur 5. maí
mánudagur 4. maí
Lengjudeild karla
laugardagur 2. maí
Besta karla
Lengjudeild kvenna
Besta karla
sunnudagur 26. apríl
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
sunnudagur 12. apríl
Besta deildin
sunnudagur 17. maí
Úrvalsdeildin
Leeds 1 - 0 Brighton
Man Utd 3 - 2 Nott. Forest
Wolves 1 - 1 Fulham
Newcastle 3 - 1 West Ham
Brentford 2 - 2 Crystal Palace
Everton 1 - 3 Sunderland
1. deild
Brest 1 - 1 Angers
Lyon 0 - 4 Lens
Nice 0 - 0 Metz
Lorient 0 - 2 Le Havre
Lille 0 - 2 Auxerre
Strasbourg 5 - 4 Mónakó
Nantes 0 - 0 Toulouse
Paris FC 2 - 1 PSG
Marseille 3 - 1 Rennes
Frauen
Hoffenheim W 0 - 0 RB Leipzig W
Essen W 1 - 1 Freiburg W
Bayer W 1 - 3 Werder W
Hamburger W 0 - 1 Bayern W
Carl Zeiss Jena W 0 - 3 Koln W
Wolfsburg W 3 - 1 Nurnberg W
Eintracht Frankfurt W 4 - 2 Union Berlin W
Vináttuleikur
Kyrgyzstan U-20 0 - 0 Afghanistan U-20
Tajikistan U-20 0 - 3 Uzbekistan U-20
Egypt U-19 2 - 1 Oman U-19
Serie A
Sassuolo 2 - 3 Lecce
Juventus 0 - 2 Fiorentina
Pisa 0 - 3 Napoli
Atalanta 0 - 1 Bologna
Udinese 0 - 1 Cremonese
Roma 2 - 0 Lazio
Inter 1 - 1 Verona
Como 1 - 0 Parma
Cagliari 2 - 1 Torino
Genoa 1 - 2 Milan
Serie A - Women
Fiorentina W 2 - 1 Lazio W
Napoli W 1 - 1 Sassuolo W
Parma W 1 - 3 Juventus W
Ternana W 1 - 0 Milan W
La Liga
Elche 1 - 0 Getafe
Levante 2 - 0 Mallorca
Osasuna 1 - 2 Espanyol
Barcelona 3 - 1 Betis
Sevilla 0 - 1 Real Madrid
Real Sociedad 3 - 4 Valencia
Vallecano 2 - 0 Villarreal
Atletico Madrid 1 - 0 Girona
Oviedo 0 - 1 Alaves
Athletic 1 - 1 Celta
Damallsvenskan - Women
Vittsjo W 1 - 0 Djurgarden W
AIK W 2 - 1 Pitea W
Eskilstuna United W 1 - 0 Uppsala W
Norrkoping W 3 - 0 Brommapojkarna W
sun 17.maí 2026 20:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: Fylkir tapaði 71 milljón króna árið 2025

Í ársreikningi Fylkis má sjá að rekstrartekjur lækkuðu um 83 milljónir króna, launahlutfall var 84%, tap upp á 71 milljónir króna, eignir lækkuðu um 76% og skuldahlutfall var 133%.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

Rekstrartekjur Fylkis voru 240,7 milljónir króna á síðasta ári og lækkuðu um 83 milljónir króna á milli ára, eða sem um nemur 25,7% lækkun. Stærsti hluti tekna Fylkis á síðasta ári voru aðrar tekjur af íþróttastarfi en Fylkir tekjufærði 133 milljónir króna þar. Ýmsar tekjur falla undir þann lið, þar á meðal æfingagjöld sem voru 95 milljónir króna. Næststærsti tekjuliður Fylkis voru framlög og styrkir 86,4 milljónum króna, eða tæplega 36% af rekstrartekjum Fylkis. 

Rekstrargjöld Fylkis voru 310 milljónir króna og lækkuðu um 2% á milli ára. Hátt í tveir þriðjungar af útgjöldum Fylkis fóru í launagreiðslur sem voru 201 milljón króna í fyrra.

Launahlutfall Fylkis hækkaði um 20,9 prósentustig á milli ára og var 83,6% árið 2025. Síðustu fjögur ár hefur launahlutfall Fylkis að meðaltali verið 70,4%.

Félagið var rekið með 71 milljón króna tapi á síðasta ári. Uppsöfnuð afkoma síðustu fjögurra ára er neikvæð um 112 milljónir króna. Ef einungis er litið á rekstrarafkomu (EBITDA) Fylkis þá er hún neikvæð um 91 milljón króna síðustu fjögur árin.

Eignir Fylkis lækkuðu um tæplega 76% á milli ára og stóðu í 17,5 milljónum króna í árslok 2025. Lækkunin er fyrst og fremst vegna lækkunar á viðskiptakröfum sem fóru úr því að vera 55 milljónir króna árið 2024 í 2 milljónir króna árið 2025. Stærsta eign Fylkis eru leikmannasamningar sem eru eignfærðir á ríflega 10 milljónir króna. Það skal þó hafa í huga að sú aðferð sem er notuð til þess að verðmeta leikmannasamninga hjá íslenskum fótboltaliðum er í andstöðu við íslensku ársreikningalögin. Ef leikmannasamningar væru verðmetnir með lögmætum hætti þá ættu eignfærðir leikmannasamningar Fylkis í raun að vera lægri, sennilega einhverjum 5 milljónum króna lægri. Eignir Fylkis í þessum ársreikningi ættu því sennilega að vera eitthvað í kringum 12 milljónir króna, en ekki 17,5 milljónir króna.

Það er áhyggjuefni hversu lítið handbært fé Fylkir hefur átt síðustu árin. Síðustu fjögur árin hefur handbært fé mest verið 670 þúsund krónur, árið 2024, en lægst hefur það verið 13 þúsund krónur, árið 2025.

Það vekur það einnig upp áhyggjur að sjá veltufjárhlutfall Fylkis, sem var 8,9% árið 2025. Þetta vekur Fylkir athygli á í skýringum ársreikningsins þar sem rekstrarhæfi knattspyrnudeildarinnar er sérstaklega tekið fyrir. Þar er tekið fram að viðbúið sé að lausafjárskortur verði viðvarandi en að félagið eigi í viðræðum við fjármálastofnanir.

Skuldir Fylkis lækkuðu hressilega á milli ára og námu 23 milljónum króna í árslok 2025. Stærsti hluta skulda Fylkis eru í formi viðskiptaskulda, sem voru 11,7 milljónir, en þar á eftir var yfirdráttalán upp á 5 milljónir króna næststærsta skuld Fylkis.

Þó svo að skuldir lækkuðu þó hækkaði skuldahlutfall Fylkis. Það var komið í 133,4% í árslok 2025 en hafði verið 76,0% árið áður.

Eigið fé Fylkis var neikvætt um 23,5 milljónir króna árið 2025 og lækkaði um 17,6 milljónir króna á milli ára.

Eigið fé Fylkis hefur þrjá undurliði. Ef litið er á óráðstafað eigið fé má sjá að það hefur nánast verið botnlaust hít undanfarin ár. Það sem hefur haldið eiginfjárreikningi Fylkis uppi er eiginfjárframlag aðalstjórnar sem nam 49 milljónum króna á síðasta ári. Þá má einnig nefna að endurmatsreikningur leikmanna ætti í raun að vera núll krónur en ekki 4,6 milljónir króna, þar sem sá endurmatsreikningur er afleiðing ólögmætu verðmatsaðferðar leikmannasamninga sem leyfisreglugerð KSÍ skikkar félög til þess að fylgja.

Eigið fé Fylkis hefði því í raun átt að vera neikvætt um tæplega 10,5 milljónir króna en ekki 5,8 milljónir króna.