Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 22:01
Sigurjón Árni Torfason
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Jói Kalli var mjög svekktur eftir leik
Jói Kalli var mjög svekktur eftir leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH steinlá í bikarnum gegn Fylki fyrir nokkrum dögum
FH steinlá í bikarnum gegn Fylki fyrir nokkrum dögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tapaði 1-2 í dag gegn KA í Kaplakrika núna í kvöld.
Jóhannes Karl var heldur betur ósáttur eftir leik þegar Fótbolti.net ræddi við hann.

Lestu um leikinn: FH 1 -  2 KA

„Þetta var mjög svekkjandi þar sem að við héldum þeim ansi mikið í skefjum og gerðum þeim erfitt fyrir þá að komast í átt að markinu okkar í marktækifæri". sagði svekktur þjálfari FH-inga.

„Ég er nokkuð viss um að okkar marktækifæri í seinni hálfleik hafi verið hættulegri heldur en þeirra. Miðað við vinnuna sem strákarnir voru tilbúnir að leggja á sig hérna í dag, þá er þetta svekkjandi niðurstaðan. Að sama skapi er margt til fyrirmyndar hjá strákunum í dag, karakter, hugarfar og frammistaðan heilt yfir".

FH hafa alls ekki byrjað þetta tímabil vel og hafa ekki ennþá unnið leik.

„Hún hefur verið alveg upp og niður. Frammistöðurnar hafa að einhverju leyti verið góðar úti á móti Breiðablik, fyrri hálfleikur á móti Fram hérna á heimavelli, gerðum við fína hluti þar, sköpuðum tækifæri, skoruðum mörk".


„Dagurinn í dag var bara flottur að ansi mörgu leyti. Við vorum að reyna að spila fótbolta, vorum að reyna að spila á réttum stöðum og á köflum að reyna að komast aftur fyrir vörn KA-manna sem eru bara með ansi vel mannað lið, þannig að upp og niður. Það er að skapast ansi góður andi í þessum leikmannahóp og við erum bara að fara að setja frammistöðurnar saman, en þetta féll ekki með okkur í dag".

Framtíð Jóhannesar Karls hefur verið í umræðunni að undanförnu. Spurning hvort það sé farið að trufla Jóa Kalla eitthvað?

„Ég var náttúrulega ráðinn hérna til þess að hérna leiða þetta verkefni sem að varðar stefnuna sem var ákveðið að fara í og fylgja eftir. Ég er ekki að spá í pressu eða, ég veit að það er pressa, ég er búinn að vera í fótbolta, atvinnufótbolta í 30 ár eða eitthvað".

„Ég veit alveg að það er gríðarleg pressa alltaf í fótbolta og það er það sem að gerir hann náttúrulega spennandi. Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á því að hafa skoðanir á hlutunum og þeir eru náttúrulega að styðja við bakið á liðinu sínu og hér eru öflugir stuðningsmenn. Þeir hafa rétt á sinni skoðun, og ég ber bara virðingu fyrir því en ég held ótrauður áfram, alveg sama hvað". sagði Jói Kalli að lokum.



Slapp
banner