Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea setur sig í samband við Iraola
Andoni Iraola.
Andoni Iraola.
Mynd: EPA
Chelsea hefur sett sig í samband við umboðsmenn Andoni Iraola samkvæmt Football London.

Iraola hefur náð frábærum árangri með Bournemouth síðustu ár, en hann mun yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Iraola hefur verið orðaður við uppeldisfélag sitt, Athletic Bilbao, en mun ekki fara þangað.

Chelsea er með nokkra menn á bak við tjöldin sem eru að vinna í því að ráða nýjan stjóra eftir að Liam Rosenior var rekinn. Þeir eru búnir að setja sig í samband við þá sem sjá um málin fyrir Iraola til að komast að hans plönum fyrir framhaldið.

Á meðan Chelsea leitar að arftaka Rosenior stýrir Calum McFarlane liðinu. Þetta er í annað sinn sem hann tekur við til bráðabirgða, en hann stýrði liðinu í tveimur leikjum í byrjun árs eftir að Enzo Maresca var rekinn.
Slapp
banner
banner
banner