Íslendingalið Elfsborg tapaði fyrsta deildarleik sínum á tímabilinu er liðið lá fyrir Kalmar, 2-1, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Júlíus Magnússon var í byrjunarliði hjá Elfsborg en Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum á 58. mínútu.
Elfsborg komst yfir en tapaði forystunni átta mínútum síðar og fengu síðan sigurmark í andlitið á 57. mínútu.
Liðið er í öðru sæti með 10 stig, en Kalmar var að ná í fyrsta sigurinn á tímabilinu.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn af bekknum á 85. mínútu í 1-0 sigri Malmö á AIK. Arnór Sigurðsson var ekki með Malmö sem er í 3. sæti með 10 stig.
Logi Tómasson var ónotaður varamaður hjá Samsunspor sem vann þriðja leikinn í röð er það lagði Alanyaspor að velli, 3-2. Hann var á bekknum eftir að hafa spilað 120 mínútur í bikartapi í síðasta leik.
Samsunspor er í 7. sæti deildarinnar með 45 stig, en á ekki möguleika á að komast í Evrópukeppni fyrir næstu leiktíð.



