Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   mán 27. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Fjórði sigurinn í röð hjá KR?
KR-ingar mæta FH-ingum
KR-ingar mæta FH-ingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar fá Skagamenn í heimsókn
Víkingar fá Skagamenn í heimsókn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórða umferð Bestu deildar karla klárast með fimm leikjum í kvöld.

KR-ingar eru á flugi í byrjun tímabils og hafa unnið alla þrjá leiki sína, en í kvöld mæta þeir FH-ingum sem hafa byrjað tímabilið á einu jafntefli og tveimur töpum.

Framarar taka á móti Eyjamönnum á Lambhagavellinum og þá munu Blikar spila við Þór á Kópavogsvelli.

Íslandsmeistarar Víkings spila við ÍA á heimavelli hamingjunnar á meðan Stjörnumenn mæta Völsurum í Garðabæ.

Leikir dagsins:

Besta karla
17:30 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Þór (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 6 +8 9
2.    Víkingur R. 3 2 1 0 6 - 3 +3 7
3.    Valur 3 2 0 1 6 - 3 +3 6
4.    Stjarnan 3 2 0 1 8 - 7 +1 6
5.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
6.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
7.    Fram 3 1 1 1 6 - 5 +1 4
8.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
9.    KA 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
10.    Keflavík 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
11.    FH 3 0 1 2 3 - 7 -4 1
12.    ÍBV 3 0 1 2 4 - 9 -5 1
Slapp
banner
banner
banner