Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
   fim 14. maí 2026 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Bellingham innsiglaði sigurinn - Sociedad gerði jafntefli án Orra
Mynd: EPA
Real Sociedad heimsótti Girona í spænsku deildinni í kvöld. Girona þurfti á úrslitum að halda í fallbaráttunni en Sociedad var án Orra Steins Óskarssonar sem tók út leikbann.

Jon Martin sá til þess að Sociedad var með forystuna í hálfleik. Hinn 39 ára gamli Cristhian Stuani jafnaði metin fyrir Girona og þar við sat. Girona stökk upp úr fallsæti og er í 15. sæti með 40 stig, stigi frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Sociedad er í 8. sæti með 45 stig.

Gonzalo Garcia kom Real Madrid yfir undir lok fyrri hálfleiks gegn Oviedo sem er þegar fallið. Jude Bellingham innsiglaði sigurinn eftir undirbúning Kylian Mbappe en þeir komu báðir inn á sem varamenn.

Real Madrid er með 80 stig í 2. sæti, ellefu stigum á eftir spænsku meisturunum í Barcelona. Oviedo er á botninum með 29 stig og það er ljóst að liðið mun enda á botninum.

Rayo Vallecano og Valencia gerðu jafntefli. Liðin eru ekki stærðfræðilega örugg með sæti í deildinni en eru um miðja deild.

Real Madrid 2 - 0 Oviedo
1-0 Gonzalo Garcia ('44 )
2-0 Jude Bellingham ('80 )

Valencia 1 - 1 Rayo Vallecano
0-0 Randy Nteka ('8 , Misnotað víti)
0-1 Florian Lejeune ('20 )
1-1 Diego Lopez Noguerol ('40 )

Girona 1 - 1 Real Sociedad
0-1 Jon Martin ('28 )
1-1 Christian Stuani ('66 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner