Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   mán 18. maí 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Getur ekki lofað því að Anderson verði áfram - „Ég er ekki með svörin“
Mynd: EPA
Vitor Pereira, stjóri Nottingham Forest, segist ekki vita hvort Elliot Anderson yfirgefi félagið eftir tímabilið eða ekki.

Anderson er lykilmaður á miðsvæðinu hjá Forest og er kominn með sæti í A-landslið Englands.

Miðjumaðurinn er farinn að vekja áhuga hjá stærstu félögunum á Englandi og er talið að það verði Manchester-liðin sem muni berjast um hann í sumarglugganum.

Samkvæmt ensku miðlunum gæti Forest verið reiðubúið að selja hann fyrir 100 milljónir punda, en Pereira segist sjálfur ekki vita hvað mun gerast í glugganum.

„Ég er ekki með svörin. Markaðurinn er eins og markaðurinn er. Allt getur gerst,“ sagði Pereira.

„Það sem ég get sagt ykkur er að félagið vill halda honum áfram hér. Það vill halda næstum öllum leikmönnunum því þetta er mjög góður hópur með gæði og karakter og svo erum við komnir með góðan grunn fyrir næstu leiktíð,“ sagði hann ennfremur.
Slapp
banner
banner
banner