Chelsea er orðað við leikmann Aston Villa og vangaveltur eru í gangi um hvar Rashford spilar á næsta tímabili. Þetta og fleira í slúðurpakkanum á þessum fallega mánudegi. Vonandi kusuð þið rétt um helgina.
Chelsea hefur áhuga á Morgan Rogers (23), sóknarmiðjumanni Aston Villa. Arsenal, Manchester United og Paris St-Germain eru einnig að horfa til enska landsliðsmannsins. (TalkSport)
Barcelona er hikandi við að borga 30 milljónir evra til að kaupa Marcus Rashford (28) alfarið frá Manchester United. Félagið er meðvitað um að Aston Villa hefur áhuga á honum. (Mundo Deportivo)
Jose Mourinho, sem er að taka við Real Madrid á ný, hefur áhuga á að endurnýja kynni sín við Rashford og fá hann á Bernabeu. (Independent)
Chelsea vill fá markvörð og er að íhuga tilboð í hinn hollenska Robin Roefs (23) hjá Sunderland. (Mirror)
Rodri (29) á ár eftir af samningi sínum við Manchester City en segist bara vera með einbeitinguna á lokaleiki tímabilsins. (Marca)
Arsenal er talið vera opið fyrir því að selja brasilíska sóknarmanninn Gabriel Jesus (29) fyrir 30 milljónir punda en hann hefur verið orðaður við AC Milan og Juventus. (Caught Offside)
Brentford, Brighton og Chelsea hafa áhuga á þýska kantmanninum Said El Mala (19) hjá Köln. (Mail)
Leeds United vill framlengja samning miðjumannsins Ethan Ampadu (25) og telur að leikmaðurinn vilji einnig skrifa undir nýjan samning. (Football Insider)
Antonio Conte stjóri Napoli hefur ýjað að því að hann gæti yfirgefið félagið eftir tímabilið en hann tryggði því Meistaradeildarfótbolta. (Football Italia)
Maurizio Sarri hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá Napoli en hann er ekki sáttur við stöðu sína hjá Lazio. (Football Italia)


