Hálfleikurinn í leik FH og KA var rúmur hálftími og talsverðar tafir urðu á því að seinni hluti leiksins var flautaður á. Ástæðan var bilun sem átti sér stað í vökvunarkerfi Kaplakrikavallar.
„Svo virðist vera að þetta sé komið í lag en eitt vökvunarkerfið fór ekki niður og búnar að vera aðgerðir á grasinu núna í hálfleik," skrifaði Sigurjón Árni Torfason í textalýsingu frá leiknum.
„Svo virðist vera að þetta sé komið í lag en eitt vökvunarkerfið fór ekki niður og búnar að vera aðgerðir á grasinu núna í hálfleik," skrifaði Sigurjón Árni Torfason í textalýsingu frá leiknum.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 KA
Einn af úðurunum hélt áfram að dæla vatni hálfur ofan í grasinu virtist vera svo úr varð flóð á litlum hluta vallarins.
Vallarstarfsmenn mættu á vettvang og grófu upp torf til að hægt væri að gera við úðarann. Það tókst að lokum en eftir var mjög áberandi dökkur blettur á vellinum eftir aðgerðirnar.
FH tapaði leiknum 1-2 eftir að hafa verið yfir í hálfleik.




