Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óskrifuð regla sem gildir enn í dag
Michael Olise.
Michael Olise.
Mynd: EPA
Eftir að hann fór til Bayern München hefur Michael Olise sýnt að hann er einn besti leikmaður í heimi. Hann hefur átt stórkostlegt tímabil þar sem hann hefur komið að 48 mörkum í 46 leikjum.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarmaður hjá Bayern, vill meina að Olise sé í raun ósnertanlegur þegar kemur að öðrum félögum.

„Árið 2009 fengum við ótrúlegt tilboð frá Chelsea í Franck Ribéry. Á þeim tíma hefði það verið nýtt heimsmet í félagaskiptum," sagði Rummenigge nýverið.

„Ég fór svo með þetta tilboð til þáverandi fjármálastjóra okkar, Karl Hopfner, og Uli Hoeness. Við ræddum þetta í tvo tíma og reyndum að átta okkur á hvað við ættum að gera. Þennan dag tókum við grundvallarákvörðun: Að í framtíðinni myndum við aldrei selja leikmann sem við myndum sakna inni á vellinum."

„Þessi óskrifaða regla gildir enn í dag. Fyrir leikmann eins og Olise er einfaldlega ekkert verð sem myndi láta okkur hika," sagði hann við fjölmiðlamanninn Julian Buhl.

Olise hefur meðal annars verið orðaður við Liverpool en hann er ekki að fara þangað miðað við orð Rummenigge.
Slapp
banner
banner