Gianluca Rocchi, yfirmaður dómaramála á Ítalíu, hefur stigið til hliðar en hann er sakaður um að hafa haft áhrif á ákvarðanir dómara í leikjum í ítölsku A-deildinni.
Myndband frá 1. mars á síðasta ári fór í dreifingu þar sem dómarar í VAR herberginu eru að taka við ábendingum frá Rocchi. Um er að ræða viðureign Udinese og Parma og er Rocchi, sem stóð við hurðina að VAR herberginu, sagður hafa látið senda dómara leiksins í skjáinn að skoða mögulega hendi.
Auk þess að hafa áhrif á dómarana er Rocchi sakaður um að hafa raðað dómurum á leiki hjá Inter sem félaginu hugnast.
Eftir að ítalskir fjölmiðlar fóru að fjalla um málið steig Rocchi sjálfur til hliðar en hann og nokkrir dómarar eru til rannsóknar. Talið er að það muni fjölga enn frekar í hópi þeirra sem verið er að skoða.

Ve soru?turman?n merkezindeki görüntü. Videonun 50’nci saniyesinde görüldü?ü üzere Paterna arkas?na dönüp birine “Penalt? m??” diye soruyor. https://t.co/2hP69rI1hu pic.twitter.com/dUiTNhJbDl
— calciolog (@calciolog_tr) April 25, 2026