Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 16:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þarf að hafa áhyggjur af Mbeumo?
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Mbeumo fagnar marki fyrr á tímabilinu.
Mbeumo fagnar marki fyrr á tímabilinu.
Mynd: EPA
Mætir sínum gömlu félögum í kvöld.
Mætir sínum gömlu félögum í kvöld.
Mynd: EPA
Þegar Bryan Mbeumo gekk til liðs við Manchester United síðasta sumar sagðist hann hafa það hugarfar að „vera alltaf betri en ég var í gær“. En eftir frábæra byrjun á lífinu á Old Trafford hefur þessi 71 milljón punda leikmaður lent á vegg, og sífellt fleiri stuðningsmenn United velta nú fyrir sér hvort hann hafi yfirhöfuð verið peninganna virði.

Enginn leikmaður United hefur skorað fleiri mörk í Premier League á þessu tímabili en Mbeumo, níu talsins, en undanfarið hafa mörkin þornað upp, ásamt framlagi hans almennt. Framherjinn frá Kamerún hefur ekki skorað síðan hann skoraði gegn Tottenham þann 7. febrúar, og hann hefur hvorki skorað né lagt upp mark í tvo mánuði.

Þegar Mbeumo undirbýr sig nú fyrir að mæta sínum fyrrum félögum í Brentford í kvöld kalla margir stuðningsmenn eftir því að Michael Carrick taki hann úr byrjunarliðinu.

Vefmiðillinn Goal veltir því upp hvort Man Utd þurfi að fara að hafa áhyggjur af Mbeumo sem var keyptur á stóra upphæð síðasta sumar.

Eftir 4–2 sigurinn á Brighton fyrr á tímabilinu var Mbeumo lofaður af The Telegraph sem bestu kaup tímabilsins á þeim tímapunkti, og erfitt var að vera ósammála því. Hann var kallaður „vinnuvél“ af þáverandi þjálfara United, Ruben Amorim, og Mbeumo umbreytti sóknarleik Manchester United.

Það hafði áhrif á árangur Mbeumo þegar hann fór til þátttöku í Afríkubikarinn í desember, og á meðan hann var fjarverandi var Ruben Amorim rekinn. Það þýddi að hann þurfti í raun að byrja upp á nýtt undir stjórn Michael Carrick.

Mbeumo hefur að mestu verið að spila sem fremsti maður liðsins eftir að Carrick tók við og fór vel af stað í því hlutverki. En frá því hann skoraði gegn Tottenham í febrúar hefur lítið verið að frétta. Hann hefur ekki komið að marki í síðustu sex leikjum sem hann hefur spilað.

Það er erfitt að halda því fram lengur að kaupin á Mbeumo séu bestu kaup síðasta sumars og hann á nú jafnvel í erfiðleikum með að halda þeim titli innan Manchester United. Senne Lammens á líklega frekar skilið þann heiður.

Mbeumo er jafnvel ekki lengur besti sóknarmaðurinn sem United fékk í sumar, þar sem Benjamin Sesko hefur náð honum sem markahæsti leikmaður liðsins, með fjögur mörk síðan Mbeumo skoraði síðast. Óákveðni Michael Carrick varðandi það hver eigi að vera fremsti maður liðsins er hluti af vandamálinu. Mbeumo hefur ekki verið eins öflugur síðan hann fór að spila samhliða Sesko, og hefur ekki náð að skapa sér eitt einasta skot í þessum fjórum leikjum þar sem hann hefur verið notaður úti á hægri kantinum.

„Það er ljóst að Mbeumo er undir gríðarlegri pressu að finna aftur sitt fyrra form frá byrjun tímabilsins, og hann hefur ekki efni á að markaleysið haldi áfram út tímabilið. Ef honum tekst ekki að finna aftur markaskóna í síðustu fimm leikjum United á tímabilinu, mun hann enda með færri mörk en Rasmus Höjlund skoraði á sínu fyrsta tímabili, og vera á sömu erfiðu braut og Daninn náði aldrei að snúa við," segir í grein Goal.

„Mbeumo þarf einfaldlega að fylgja eigin mottói og vera mun betri en hann var í gær, annars gætu draumaskipti hans til United endað fyrr en nokkur bjóst við."
Slapp
banner
banner
banner