Portúgalski bakvörðurinn Raphael Guerreiro verður ekki með Bayern München í undanúrslitaleikjunum gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain vegna meiðsla.
Þessi 32 ára gamli leikmaður er að glíma við meiðsli aftan í læri sem munu halda honum frá keppni næstu tvær vikur.
BILD segir það öruggt að hann verði ekki með í báðum leikjunum gegn PSG sem fara fram í þessari og næstu viku.
Portúgalinn hefur öflugur í ógnarsterku liði Bayern, sem varð Þýskalandsmeistari á dögunum, en hann hefur komið að níu mörkum í 27 leikjum.
Þetta er líklega síðasta tímabil Guerreiro hjá Bayern, en samningur hans rennur út eftir tímabilið og stendur ekki til að framlengja.


