Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 19:08
Brynjar Ingi Erluson
Viktor Bjarki skoraði aftur í sigri á Vejle
Viktor Bjarki setti annað deildarmark sitt í kvöld
Viktor Bjarki setti annað deildarmark sitt í kvöld
Mynd: EPA
Framarinn Viktor Bjarki Daðason skoraði annað deildarmark sitt fyrir FCK í 3-0 sigri á Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Aðeins nokkrar vikur eru liðnar síðan Viktor Bjarki gerði langþráð fyrsta mark sitt í deildinni.

Hann hafði skorað þrjú mörk í Meistaradeildinni fyrir FCK, en hafði leikið þrettán leiki án þess að skora. Hann skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir rúmri viku og einmitt líka gegn Vejle.

Samtals hefur hann skorað þrjú mörk gegn Vejle á tímabilinu, en hann gerði eitt með U19 ára liði FCK og þá kominn með þessi tvö gegn aðalliðinu í deildinni.

Hægt er að sjá markið hjá Viktori hér fyrir neðan.


Slapp
banner
banner