Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 14:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Andri Lucas í tapliði og Leicester í bullinu
Andri Lucas Guðjohnsen.
Andri Lucas Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Blackburn er liðið tapaði gegn Derby County á útivelli í ensku Championship-deildinni núna í kvöld.

Blackburn tók forystuna undir lok fyrri hálfleiks en Derby sneri taflinu við í seinni hálfleik og vann að lokum þægilegan sigur. Rhian Brewster, fyrrum leikmaður Liverpool, var á meðal markaskorara í leiknum.

Andri og félagar færðust sem betur fer ekki nær fallsvæðinu því Leicester, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, er í algjöru rugli og tapaði fyrir Norwich á heimavelli í dag. Það gengur hvorki né rekur hjá Leicester og góðar líkur á því að liðið muni falla tvisvar í röð.

Hull vann þá sterkan útisigur á Portsmouth og er þremur stigum á eftir Middlesbrough, sem er í öðru sæti deildarinnar.

Portsmouth 0 - 1 Hull City
0-1 Matt Crooks ('73 )

Leicester City 0 - 2 Norwich
0-1 Ben Slimane ('68 )
0-2 Ali Ahmed ('78 )

Derby County 3 - 1 Blackburn
0-1 Hayden Carter ('45 )
1-1 Ben Brereton Diaz ('55 )
2-1 Matt Clarke ('74 )
3-1 Rhian Brewster ('82 )
Athugasemdir
banner
banner