Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valinn í U19 landsliðið og framlengir samninginn
Styrmir Jóhann Ellertsson.
Styrmir Jóhann Ellertsson.
Mynd: ÍA
Styrmir Jóhann Ellertsson hefur framlengt samning sinn við ÍA og gildir nýr samningur hans út leiktíðina 2028.

Styrmir kemur úr yngri flokka starfi félagsins og hefur verið lykilmaður í sterkum 2. flokki ÍA síðustu ár. Hann á að baki 15 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Styrmir er tæknilega öflugur leikmaður með góðan leikskilning og getur bæði spilað sem miðvörður og miðjumaður," segir í tilkynningu Skagamanna.

„Það verður spennandi að fylgjast með þessum unga og efnilega leikmanni vaxa og dafna innan okkar raða á næstu árum."

Styrmir Jóhann var fyrr í dag valinn í hóp U19 landsliðsins fyrir æfingamót í Portúgal. Í þeim hóp átti ÍA flesta fulltrúa eða fjóra talsins.
Athugasemdir
banner