Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 28. febrúar 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Emery: Markmiðið var að halda okkur uppi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Unai Emery svaraði spurningum eftir tap Aston Villa á útivelli gegn botnliði Wolves í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Þetta var aðeins annar sigur Úlfanna á deildartímabilinu og um leið skellur fyrir Aston Villa sem þurfti sigur til að halda daufum titilbaráttuvonum sínum á lífi, en liðið er núna tíu stigum frá toppinum þegar tíu umferðir eru eftir.

„Ef við horfum til baka og skoðum væntingarnar fyrir tímabilið þá erum við ennþá á góðum stað," sagði Emery eftir tapið. „Við megum ekki vera pirraðir. Einhverjum líður kannski eins og við séum að missa af titilbaráttunni, fyrir tveimur mánuðum vorum við í baráttu við Arsenal og Manchester City en ekki lengur.

„Ég var byrjaður að trúa að þetta gæti verið mögulegt, kannski var stuðningsmönnum á sama tíma að dreyma það. Núna er þessi möguleiki ekki lengur í myndinni og ég skil að einhverjir séu pirraðir.

„Markmiðið okkar fyrir tímabilið var að halda okkur í deildinni. Eftir slæma byrjun í september var ég smeykur en svo þegar var komið í desember var ég orðinn spenntur fyrir meistaradeildarbaráttunni. Fyrir einum mánuði var mig byrjað að dreyma um að vinna úrvalsdeildartitilinn, en markmiðið núna er að enda í meistaradeildarsæti. Manchester United, Liverpool og Chelsea eru risastór félög og því líklegri til að enda í þessum sætum, en við erum með í baráttunni."


Emery ræddi einnig um tapleikinn sjálfan og taldi sína menn ekki hafa spilað neitt sérstaklega illa.

„Ég vil byrja á því að óska leikmönnum til hamingju með þetta frábæra tímabil sem þeir eru að eiga. Í kvöld stjórnuðum við ferðinni í fyrri hálfleik, við sköpuðum færi og áttum skilið að skora en tókst ekki. Í seinni hálfleik byrjuðu þeir að vinna fleiri bolta og svo varð róðurinn sífellt þyngri eftir að þeir náðu forystunni.

„Við vorum þreyttir og alltof opnir gegn sterkum andstæðingum. Núna er mikilvægt að hópurinn sé samheldinn. Það eru vonbrigði að tapa í dag en þetta er enn í okkar höndum, við verðum að gera það besta sem við getum úr því."


   27.02.2026 19:59
Emery: Verður erfitt að halda þriðja sætinu

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner