Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 28. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Mikael heimsækir toppliðið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fara þrír leikir fram í ítalska boltanum í dag og hefst fjörið við Como-vatn þar sem lærisveinar Cesc Fábregas spila við fallbaráttulið Lecce.

Þórir Jóhann Helgason hefur verið á bekknum í sex af síðustu átta leikjum Lecce en hann kom síðast við sögu með liðinu 6. janúar. Lecce er í fallsæti sem stendur með 24 stig eftir 26 umferðir og nægir stig til að lyfta sér upp í öruggt sæti, þó það sé ekki nema tímabundið.

Ungt lið Como er að gera frábæra hluti undir leiðsögn Fábregas og er búið að ná í fjögur stig í síðustu tveimur leikjum sem voru á útivelli gegn Juventus og AC Milan. Como er í evrópusæti, aðeins fimm stigum frá Meistaradeildinni.

Botnlið Verona spilar svo við ríkjandi Ítalíumeistara Napoli, sem eru svo gott sem búnir að missa af titlinum þetta árið, áður en líklegir Ítalíumeistarar Inter spila heimaleik við Genoa.

Inter er með tíu stiga forystu á nágranna sína í AC Milan og munu liðin eigast við í æsispennandi titilbaráttuslag um næstu helgi. Inter verður með alla einbeitinguna á titilbaráttunni eftir að liðið datt afar óvænt úr leik í Meistaradeild Evrópu á dögunum.

Mikael Egill Ellertsson hefur stimplað sig inn sem mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Genoa og er búinn að spila 90 mínútur síðustu sex leiki í röð. Liðið er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir sigur gegn Torino um síðustu helgi.

Leikir dagsins
14:00 Como - Lecce
17:00 Verona - Napoli
19:45 Inter - Genoa
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Napoli 30 19 5 6 46 30 +16 62
3 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Udinese 30 11 6 13 35 42 -7 39
11 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 30 8 9 13 36 42 -6 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 30 7 9 14 31 42 -11 30
16 Fiorentina 29 6 10 13 34 43 -9 28
17 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
18 Cremonese 29 5 9 15 23 44 -21 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner
banner