Ragnar Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, hefur lagt það til að rússnesk félög horfi til Viktors Bjarka Daðasonar.
Ragnar, sem spilaði 97 landsleiki fyrir Ísland, spilaði í nokkur ár í Rússlandi með Krasnodar, Rubin Kazan og Rostov.
Ragnar, sem spilaði 97 landsleiki fyrir Ísland, spilaði í nokkur ár í Rússlandi með Krasnodar, Rubin Kazan og Rostov.
Í viðtali við rússneskan fjölmiðilinn RB Sport var Ragnar spurður út í hvaða íslenska fótboltamann rússnesk félög ættu að fylgjast með.
„Ég legg það til að rússnesk félög skoði Viktor Bjarka Daðason," sagði Ragnar en Viktor Bjarki er 17 ára gamall og spilar með FC Kaupmannahöfn í Danmörku.
„Hann verður súperstjarna á næstu árum. Hann er nú þegar búinn að skora tólf mörk fyrir aðallið FC Kaupmannahafnar á tímabilinu þrátt fyrir að vera bara 17 ára gamall."
„Ég vil líka minnast á Albert Guðmundsson, Hákon Haraldsson og Jón Dag Þorsteinsson. Svo er Sverrir Ingi Ingason, fyrrum leikmaður Rostov, enn að spila frábærlega þó hann sé 32 ára."
Það er nú ólíklegt að næsta skref Viktors Bjarka verði Rússland og sérstaklega á núverandi tímapunkti þar sem ástandið í landinu er ekki frábært.
Ragnar er í dag þjálfari U17 liðs AGF í Danmörku þar sem hann hefur verið að gera mjög góða hluti.
Athugasemdir


