Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 28. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Toppbarátta í Barcelona
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er líf og fjör í spænska boltanum í dag þar sem topplið Barcelona spilar við Villarreal í toppbaráttunni.

Börsungar eru í harðri titilbaráttu við Real Madrid, heilum tíu stigum fyrir ofan Villarreal sem mun freista þess að reyna að minnka bilið.

Leikurinn fer fram í Barcelona og verður þetta því afar erfið þraut fyrir Gula kafbátinn.

Athletic Bilbao heimsækir Rayo Vallecano einnig í dag áður en Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad kíkja til Mallorca. Orri Steinn skoraði tvennu af bekknum í síðustu umferð og verður spennandi að sjá hversu mikinn spiltíma hann fær í dag.

Atlético Madrid mætir að lokum til leiks í kvöld, á útivelli gegn botnliði Real Oviedo. Atlético situr í fjórða sæti, þremur stigum á eftir Villarreal og sex stigum fyrir ofan Real Betis.

Leikir dagsins
13:00 Rayo Vallecano - Athletic Bilbao
15:15 Barcelona - Villarreal
17:30 Mallorca - Real Sociedad
20:00 Real Oviedo - Atletico Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 28 23 1 4 77 28 +49 70
2 Real Madrid 28 21 3 4 60 24 +36 66
3 Villarreal 29 18 4 7 54 34 +20 58
4 Atletico Madrid 28 17 6 5 47 25 +22 57
5 Betis 28 11 11 6 43 35 +8 44
6 Celta 28 10 11 7 38 31 +7 41
7 Real Sociedad 29 10 8 11 44 45 -1 38
8 Espanyol 28 10 7 11 35 42 -7 37
9 Getafe 28 10 5 13 23 30 -7 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 28 9 7 12 33 35 -2 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Vallecano 28 7 11 10 28 34 -6 32
14 Valencia 28 8 8 12 30 42 -12 32
15 Sevilla 28 8 7 13 37 47 -10 31
16 Mallorca 28 7 7 14 33 45 -12 28
17 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
18 Elche 28 5 11 12 36 45 -9 26
19 Levante 28 5 8 15 30 46 -16 23
20 Oviedo 28 4 9 15 18 44 -26 21
Athugasemdir
banner