Aaron Wan-Bissaka segist hafa verið með mikla heimþrá þegar hann gekk fyrst í raðir Manchester United.
Í einlægu viðtali við Daily Mail opinberar Wan-Bissaka að hann hafi átt erfitt andlega eftir að hann gekk í raðir United frá Crystal Palace fyrir 50 milljónir punda árið 2019.
Í einlægu viðtali við Daily Mail opinberar Wan-Bissaka að hann hafi átt erfitt andlega eftir að hann gekk í raðir United frá Crystal Palace fyrir 50 milljónir punda árið 2019.
„Þegar ég fór til United þá var ég með mikla heimþrá og saknaði fjölskyldu minnar og vina. Eftir æfingar þá tók ég lestina aftur til London á nánast hverjum degi," segir Wan-Bissaka.
Það tekur rúmar tvær klukkustundir að taka lestina frá Manchester til London.
„Það var erfitt að aðlagast. Flesta daga var ég bara einn heima og spilaði PlayStation þangað til ég fór að sofa. Ég held að mér hafi aldrei liðið eins illa."
Wan-Bissaka átti góð augnablik inn á milli með Man Utd en hann yfirgaf félagið 2024 og fór þá aftur til London, til West Ham.
Athugasemdir



