Segir mikilvægt að halda Ásgeiri Berki og Alberti Brynjari
Ásmundur Arnarsson skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki klukkan 18 í kvöld. Ekki er ljóst hver verður aðstoðarmaður hans en það kemur í ljós á næstu dögum.
„Mér lýst gríðarlega vel á þetta verkefni, annars hefði ég ekki tekið þetta skref. Fylkir er flottur klúbbur og mér finnst þetta rétt skref fyrir mig á þessum tímapunkti og vonandi fyrir klúbbinn líka," segir Ásmundur sem segir erfitt að kveðja Fjölni í Grafarvogi.
„Það er gríðarlega erfitt. Þetta var að mörgu leyti gríðarlega erfið ákvörðun að segja skilið við klúbb sem ég hef starfað fyrir í sjö ár og samstarfið verið mjög ljúft og gott. Þetta var þannig tækifæri og það spennandi að ég varð að taka þessu."
Þegar er ljóst að Ágúst Gylfason mun taka við af Ásmundi hjá Fjölni en Ágúst hefur verið hans aðstoðarmaður í Grafarvoginum. „Gústi er alveg tilbúinn í þetta verkefni og ég hef mikla trú á því að hann geri vel úr þessu. Ég vonast til að ég skili góðu búi og vonandi taki þetta það skref sem við ætluðum okkur á næsta ári,"segir Ásmundur.
En hvað verður fyrsta verk Ásmundar í Árbænum? „Fyrsta verk verður að skoða stöðuna á þeim leikmönnum sem eru að renna út á samning og sjá hvort ekki sé hægt að ná saman þar. Jafnframt því að skoða hvaða mögulegar styrkingar þurfa."
Meðal leikmanna sem eru að renna út á samning eru miðjumaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson og sóknarmaðurinn Albert Brynjar Ingason. „Ég lít á þá sem lykilmenn hér og mjög mikilvægt að festa þá," segir Ásmundur.
„Ég finn fyrir miklum hug frá stjórninni að gera vel á næsta ári og búa til gott lið og það er bara okkar markmið í sameiningu að gera það."
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá frá undirskrift Ásmundar viðtalinu við hann í heild sinni.























