Chris Wood, framherji Nottingham Forest, er að snúa aftur eftir að hafa verið fjarverandi í hálft ár vegna meiðsla.
Forest hefur verið í miklum vandræðum á tímabilinu en Vitor Pereira er þriðji stjórinn sem hefur verið við stjórnvölin á tímabilinu.
Forest hefur verið í miklum vandræðum á tímabilinu en Vitor Pereira er þriðji stjórinn sem hefur verið við stjórnvölin á tímabilinu.
Wood verður í leikmannahópnum sem mætir Porto á útivelli í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á morgun. Hann skoraði 20 mörk fyrir liðið sem endaði í 7. sæti á síðustu leiktíð en hann hefur aðeins skoraði fjögur mörk í 13 leikjum á þessu tímabili.
„Hann er reyndur leikmaður, hann skorar mörk og þaað er mikilvægt að hann sé tilbúinn á þessum tímapunkti því við erum að takast á við margar áskoranir," sagði Pereira.
Wood hefur verið fjarverandi síðan í október. Hann spilaði síðast þegar Ange Postecoglou stýrði liðinu en hann kom ekkert við sögu undir stjórn Sean Dyche. Pereiria tók við af honum í febrúar.

