Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Al-Gharafa sem gerði grátlegt jafntefli gegn Al Wakra í deildinni í Katar í dag.
Al-Gharafa var með 3-1 forystu þegar tuttugu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Luis Alberto, fyrrum leikmaður Liverpool og Lazio, minnkaði muninn og Almahdi Ali, fyrrum leikmaður Al-Gharafa bjargaði stigi fyrir Al Wakra með marki í uppbótatíma.

Al-Gharafa hefur aðeins safnað fjórum stigum úr síðustu átta leikjum og er í 4. sæti með 35 stig fyrir lokaumferðina. Liðið þarf að ná í úrslit til að eiga möguleika á að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð.
Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Larissa sem tapaði 2-1 gegn Panetolikos í fallbaráttunni í Grikklandi. Larissa er í 12. sæti með 23 stig, aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Sveinn Aron Guðjohnsen spilaði seinni hálfleikinn í 1-1 jafntefli Cavese gegn U23 liði Atalanta í ítölsku C-deildinni. Cavese er í 13. sæti í C riðli með 37 stig.