Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 23:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enrique: Það er erfitt að spila á Anfield
Mynd: EPA
Luis Enrique, stjóri PSG, var ánægður með sigur liðsins gegn Liverpool á heimavelli í fyrri leiknum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Hann varaði hins vegar við því að leikurinn á Anfield verður erfiður.

„Við áttum þennan sigur skilið. Þetta var erfiður leikur, mjög jafn, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við sköpuðum fullt af færum í seinni hálfleik. Það er synd því við hefðum getað skorað í það minnsta eitt mark í viðbót," sagði Enrique.

„Andrúmsloftið á vellinum var frábært, við spiluðum jafn vel og stuðningsmennirnir sungu og það er ekki auðvelt. Nú er tími til að njóta sigursins, endurheimta og hugsa um seinni leikinn í Liverpool."

„Ég hef séð tenginguna á milli liðsins og stuðningsmanna síðan ég kom og hún er sterkari núna en nokkru sinni fyrr. Við förum til Liverpool til að vinna eins og alltaf. Það verður erfitt því það er erfitt að spila á Anfield."
Slapp
banner