Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aron um Arnór Ingva: Eins og að fá tvo til þrjá byrjunarliðsmenn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason sneri aftur heim úr atvinnumennsku í vetur og samdi við KR. Í leikmannakönnun var koma Arnórs í Vesturbæinn valin bestu kaupin í vetur.

Hann kom frá Norrköping þar sem atvinnumannaferillinn hófst fyrir alvöru árið 2014. Arnór Sigurðarson, fyrirliði KR, var spurður út í komu Arnórs á kynningarfundi Bestu deildarinnar í gær.

„Hann hefur komið fyrst og fremst með fótboltaleg gæði, leiðtogi, fittar vel inn í hópinn og er frábær náungi. Þetta er eins og að fá tvo til þrjá byrjunarliðsmenn í liðið. Frábær í alla staði og geggjuð viðbót í hópinn," sagði Aron.

Finnst þér eins og ábyrgðinni sé meira dreift?

„Það má segja það. Það eru margir leiðtogar í hópnum, maður getur aðeins droppað öxlunum og leyft fleirum að taka við."

föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Slapp
banner