Liverpool er 2-0 undir í einvíginu gegn PSG í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir fyrri leikinn í París í kvöld. Liverpool sá ekki til sólar og náði ekki að ógna marki franska liðsins. Arne Slot segir að sínir menn séu heppnir að vera ekki í verri stöðu.
„Við erum heppnir að vera bara 2-0 undir því þeir fengu fleiri færi en úr mörkunum. Fyrra markið var erfitt því við vorum varla búnir að fá á okkur færi og svo fer boltinn í netið eftir viðkomu í varnarmanni," sagði Slot.
„Það er gott fyrir okkur að við erum ennþá inn í einvíginu. Nú förum við á Anfield og það vita allir hversu mikinn mun Anfield getur gert."
Slot var spurður að því hvort hann væri pirraður á því að liðið hafi ekki skapað fleiri færi.
„Já og nei. Við viljum skapa meira en við höfðum ekki tækifæri til þess. Þeir voru mikið með boltann og mikið tempó og hraði. Við reyndum að pressa hátt en þeir spiluðu oft í gegnum okkur. Við komumst nokkrum sinnum í álitlegar stöður en þeir halda alltaf áfram og maður eins og Ekitike er líklega mjög þreyttur," sagði Slot.

