,,Ég er búinn að spila með Skaganum frá því að ég fæddist nánast og ég þurfti að breyta til og fá nýtt umhverfi og læra af nýjum mönnum," sagði Ragnar Leósson við Fótbolta.net eftir að hafa skrifað undir félagaskipti til ÍBV í gær.
Ragnar hefur leikið með ÍA undanfarin ár en hann gerði í haust þriggja ára samning við ÍBV. Ragnar er í námi í Bandaríkjunum en hann er staddur hér á landi í jólafríi og skrifaði undir félagaskiptin í gær.

,,Ég er rosalega ánægður með þetta. Þetta er eitthvað sem mig hefur langað að gera síðustu 3-4 ár og loksins rættist það."
Ragnar mun halda aftur til Bandaríkjanna eftir ármaót en hann verður mættur til Íslands áður en keppni í Pepsi-deildinni hefst.
,,Ég er að koma heim í lok apríl eða miðjan maí. Síðan mun ég reyna að draga það að fara út eins lengi og ég get þannig að vonandi fer ég út um miðjan september."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.