Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
   mið 25. janúar 2012 07:00
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Jóhannsson: Þetta er fljótur og sterkur strákur
Stjarnan vann 3-1 sigur á Grindavík í B-riðli Fótbolta.net mótsins í Kórnum í gær. Á sunnudaginn tapaði Stjarnan illa 6-2 í æfingaleik gegn Víkingi Ólafsvík en Bjarni Jóhansson, þjálfari Garðabæjarliðsins, var með áhersluna á Grindavíkurleiknum.

„Það voru ekki margir sem spiluðu gegn Víkingi Ólafsvík að spila hér í kvöld. Það var gjörólíkt lið sem hljóp inn á völlinn í kvöld en á sunnudaginn," sagði Bjarni í viðtali eftir leikinn í gær.

Garðar Jóhannsson, markakóngur Pepsi-deildarinnar í fyrra, var í flottum ham í gær og skoraði tvö fyrstu mörk leiksins. „Garðar spilaði heilan leik og það er bara frábært. Hann afgreiddi þessi mörk mjög vel."

Dani veitti Garðari félagsskap í sókninni, sá ber nafnið Kennie Chopart og hefur æft með Stjörnunni síðustu dag.

„Mér lýst vel á hann. Ég sá hann í fyrra og við reyndum að fá hann þá en það gekk því miður ekki. Þetta er fljótur og sterkur strákur sem er fínn á boltann," sagði Bjarni en viðtalið við hann má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner