Heimild: Vefsíða RÚV
Ólafur Þór í síðasta leik sínum með Þrótti gegn Reyni Sandgerði í haust en þarna tryggðu Þróttarar sér sæti í Landsbankadeildinni.
Ólafur Þór Gunnarsson markvörður Þróttar er hættur í fótbolta en frá þessu var greint á vefsíðu Ríkisúvarpsins í dag. Þar kemur fram að Ólafur Þór hefur að undanförnu átt við þrálát meiðsli að stríða í öxl og fékk nýverið þann úrskurð frá læknum að lítil von væri á bata.
Ólafur Þór sem er þrítugur hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár en komið heim á sumrin til að leika knattspyrnu. Hann hefur verið samningsbundinn FH undanfarin þrjú ár en var lánaður til Þróttar undanfarin tvö ár er liðið lék í 1. deildinni.
Samningur hans við FH rann út um áramótin og í október hafði hann ákveðið að ganga endanlega í raðir Þróttar og leika með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Af því verður ekki vegna meiðslanna.
Hann lék á ferli sínum með ÍR, ÍA, FH, Val og Þrótti og á að baki einn leik fyrir A-landslið Íslands.
Þróttarar höfðu einnig fengið Bjarka Freyr Guðmundsson markvörð úr Keflavík í vetur og búast má við að hann verji mark liðsins í sumar eins og hann hefur gert á undirbúningstímabilinu.
Athugasemdir