Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
   þri 01. mars 2016 18:00
Elvar Geir Magnússon
FIFA-kosningarnar
Geir Þorsteins: Infantino stýrir FIFA-skipinu á réttar brautir
Geir er hæstánægður með Infantino.
Geir er hæstánægður með Infantino.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðasta föstudag var nýr forseti FIFA kjörinn en það var Svisslendingurinn Gianni Infantino sem hafði betur eftir spennandi baráttu við sjeikinn Salman bin Ebrahim al-Khalifa. Infantino hefur starfað sem framkvæmdastjóri UEFA.

Infantino hafði stuðning frá langstærstum hluta Evrópu, þar á meðal frá KSÍ. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, er sannfærður um að hann sé rétti maðurinn í það starf að taka til innan FIFA.

„Ég hef mikla trú á honum og held að það hafi verið algjörlega nauðsynlegt að gera þessar breytingar. Hann er af nýrri kynslóð og getur tekið til hendinni. Hann þekkir allt innan knattspyrnunnar mjög vel og er inn í öllum málum. Þetta tekur tíma en hann er heiðarlegur og ábyrgur náungi. Ég er klár á því að hann mun stýra FIFA-skipinu á réttar brautir," segir Geir.

Einhverjir efast um Infantino þar sem hann hefur unnið náið með Michel Platini og Sepp Blatter sem eru báðir í banni frá afskiptum af fótbolta vegna spillingamála.

„Maður hefur heyrt slíkar raddir en hann kom hvergi nálægt þeim málum. Það þekkja allir störf Infantino svo ég hef ekki áhyggjur."

Hægt er að sjá viðtalið við Geir um forsetamál FIFA í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner