Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
McGinn: Vorum á slæmum stað fyrir sjö árum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
John McGinn fyrirliði Aston Villa var í skýjunum eftir þægilegan sigur gegn Freiburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.

McGinn og félagar þurftu að hafa furðu lítið fyrir því að leggja Þjóðverjana að velli. Lokatölur urðu 3-0 eftir tvö stórglæsileg mörk í fyrri hálfleik og eitt gott framherjamark í seinni hálfleik.

Það eru 44 ár síðan Aston Villa vann mikilvægan Evróputitil og brutust út mikil fagnaðarlæti í Birmingham, en leikurinn fór fram í Istanbúl.

„Ég trúi þessu ekki. Við vorum á slæmum stað fyrir sjö árum en V Sports keypti félagið og hefur gjörsamlega snúið gengi liðsins við. Í dag fengum við viðurkenningu fyrir allt sem við höfum unnið að síðustu árin. Ég get ekki lýst stoltinu sem ég fann þegar það voru tíu mínútur eftir af leiknum og ég vissi að við vorum að verða meistarar," sagði McGinn.

„Við byrjuðum vel og skoruðum eftir hornspyrnu. Austin MacPhee er frábær í að þjálfa okkur í föstum leikatriðum sem sást líka gegn Liverpool um helgina. Youri (Tielemans) sýndi mikil gæði til að klára þetta með marki, ég hefði sett þennan yfir!

„Þessi sigur þýðir ótrúlega mikið fyrir okkur. Ég er ótrúlega stoltur að vera fyrirliði Aston Villa sem vann Evrópudeildina 2026. Þegar ég lít til baka á ferilinn þá er þetta hápunkturinn. Ég hef aldrei verið jafn stoltur á ferlinum. Ég ætla að gera mitt besta til að njóta stundarinnar."


McGinn tjáði sig að lokum um Vilhjálm Bretaprins, sem er mikill stuðningsmaður Aston Villa og kíkti í búningsklefann fyrir leik, og var spurður hvort hann vildi sjá styttu reista af sér fyrir utan Villa Park.

„Vonandi borgar Vilhjálmur Bretaprins fyrir fría barinn í fögnuðinum. Hann er mjög fínn og eðlilegur náungi, hann er rosalega mikill stuðningsmaður Villa og hefði aldrei misst af þessum úrslitaleik fyrir neitt. Við erum ánægðir að njóta stuðnings frá honum, vonandi getur hann fengið sér nokkra drykki með okkur og tekið út kreditkortið sitt.

„Ég á nokkur ár eftir hjá Villa og meðan þessi gaur (Unai Emery) er við stjórnvölinn þá er allt mögulegt. Það mikilvæga er að halda áfram að byggja upp liðið."


   20.05.2026 20:56
Evrópudeildin: Fyrsti Evróputitill Aston Villa síðan 1982!

Slapp
banner
banner
banner