Fotbolti.net
20.05.26 - 09:18
Elvar Geir Magnússon

Leikmenn Arsenal djömmuðu alla nóttina - Fyrir utan Emirates fimm í morgun

Rice, Timber, Eze og Saka.

Rice, Timber, Eze og Saka.

Canon

Mynd: Instagram

Leikmenn Arsenal fögnuðu Englandsmeistaratitlinum í alla nótt og nokkrir af þeim voru fyrir utan Emirates leikvanginn klukkan 5 í morgun til að soga í sig sigurtilfinninguna.

Liðið var samankomið á æfingasvæðinu þar sem það fylgdist með Manchester City gera jafntefli gegn Bournemouth. Úrslitin gerðu það að verkum að Englandsmeistaratitill Arsenal er tryggður.

Miðað við myndir frá samfélagsmiðlum fór hópurinn svo í einkasamkvæmi þar sem var fagnað og sleppt af sér beislinu.
Sjáðu leikmenn Arsenal fagna þegar titillinn var í höfn
TENGT EFNI

Sjáðu leikmenn Arsenal fagna þegar titillinn var í höfn

Eldsnemma í morgun birti Eberechi Eze svo mynd af sér með liðsfélögum sínum; Declan Rice, Bukayo Saka og Jurrien Timber, fyrir utan Emirates leikvanginn.

Það var mikil gleði í norðurhluta Lundúna í gærkvöldi en stuðningsmenn Arsenal höfðu safnast saman á krám í kringum Emirates og þegar úrslitin lágu fyrir var fagnað á strætum og torgum.

Arsenal hefur tryggt sér langþráðan Englandsmeistaratitil, þann fyrsta hjá félaginu síðan hið ósigrandi lið Arsene Wenger vann hann 2004. Draumurinn um tvennuna lifir, eftir eina og hálfa viku er leikið gegn PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Martin Ödegaard bregður á leik í einkasamkvæmi þar sem leikmenn Arsenal fögnuðu.

Martin Ödegaard bregður á leik í einkasamkvæmi þar sem leikmenn Arsenal fögnuðu.

Canon

Mynd: Instagram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.