Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
   mið 20. maí 2026 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks var ánægður með frammistöðu liðsins eftir þægilegan sigur á Akureyri gegn Þór/KA.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  3 Breiðablik

Blikar klúðruðu dauðafærum í fyrri hálfleik og var staðan var markalaus í leikhlé en flóðgáttirnar opnuðust í síðari hálfleik. Agla María Albertsdóttir skoraði eitt og lagði upp tvö til að innsigla sigur.

„Mér fannst þetta ekki vera jafn fyrri hálfleikur, við áttum fullt af góðum færum og komumst tvisvar eða þrisvar einar gegn markmanni. Við hefðum átt að fara inn í hálfleikinn tvö eða þrjú núll yfir fannst mér," sagði Ian eftir leikinn.

„Við breyttum engu fyrir seinni hálfleikinn. Við héldum áfram að gera það sama og í fyrri hálfleik, bara nýttum færin aðeins betur."

Ian hrósaði kantmönnunum sínum sem sköpuðu mikinn usla með miklum hraða. Hann er ánægður með byrjun liðsins í Bestu deildinni enda eru Blikar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir.

„Þetta er erfið deild, það eru tíu góð lið og maður þarf alltaf að vera 'on it' fyrir hvern einasta leik. Við erum bara að hugsa um okkur, við erum að reyna að bæta okkur og gera hlutina betur. Okkar fókus er bara þar."
Slapp
banner
banner