Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   mið 20. maí 2026 23:31
Snæbjört Pálsdóttir
Jón Óli um meiðsli og litla breidd: „Það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum“
Kvenaboltinn
Jón Óli þjálfari ÍBV viðurkenndi að þreyta væri farin að segja til sín í hópnum.
Jón Óli þjálfari ÍBV viðurkenndi að þreyta væri farin að segja til sín í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV mátti sætta sig við 3-0 tap gegn FH í fimmtu umferð Bestu deildarinnar í Kaplakrika í kvöld. Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var svekktur með úrslitin en hrósaði engu að síður sínum leikmönnum fyrir vinnuframlagið.

„Það er svekkjandi tap en mjög ánægður með vinnuframlag minna kvenna. Við vorum bara að spila við lið í dag sem er einfaldlega mikið betra knattspyrnulið en við sem skóp þennan góða sigur fyrir FH,“ sagði Jón Óli eftir leik.


Lestu um leikinn: FH 3 -  0 ÍBV

ÍBV varð fyrir tveimur áföllum í fyrri hálfleik þegar bæði Allison Lowrey og Embla þurftu að fara af velli vegna meiðsla. Þjálfarinn viðurkenndi að staðan á Lowrey væri áhyggjuefni.

„Framherjinn er greinilega að eiga í einhverju verra en hefur verið hingað til. Það er mikið áhyggjuefni. Varðandi Emblu þá höfum við ekki ennþá fengið upplýsingar hvað það var sem kom fyrir.“

„Þetta er það sama og kom upp þarna í Þórs/KA leiknum og raunar fyrir það en hún hefur alltaf dugað að lágmarki kannski 70 mínútur en það er greinilegt að þetta er eitthvað verra.“

Þá telur Jón Óli þétt leikjaprógramm og lítinn hóp hafa haft áhrif á frammistöðuna í kvöld.

„Já maður sá það bara bæði í bikarleiknum á móti Tindastól og það var augljóst hér í dag að það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum. Það veldur náttúrulega líka meiðslahættu.“

Hann hafði þó orð á því að FH hefði átt sinn besta leik í sumar hingað til.

„FH liðið sannarlega vaknaði í dag. Þetta var þeirra langbesti leikur á þessu leiktímabili. Þær einfaldlega urðu að vinna þennan leik því ef við hefðum unnið hér í dag þá myndi muna 8 stigum á liðunum.“

Næsti leikur ÍBV er gegn Grindavík/Njarðvík á mánudag og Jón Óli lauk viðtalinu á léttum nótum.

„Núna er fókusinn bara að taka á móti mínum stúlkum úr Grindavík á mánudaginn og við sjáum til hversu mikil gestrisnin verður.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner