Fotbolti.net
20.05.26 - 12:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ÍA hefur samband við Rosenörn

ÍA hefur samband við Rosenörn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA er að kanna möguleika á því að fá inn markvörð til félagsins og hefur haft við samband við KSÍ um að fá undanþágu á félagaskiptum þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður.

Árni Marinó Einarsson, aðalmarkvörður ÍA, er meiddur og verður frá næstu 6-8 vikurnar eftir að hafa ristarbrotnað á sunnudag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur ÍA sett sig í samband við Mathias Rosenörn. Rosenörn er 32 ára Dani sem varði mark FH á síðustu leiktíð og var þar áður hjá Stjörnunni og Keflavík. Rosenörn er án félags sem stendur.

Isak Theodor Eidem (2009) hefur verið varamarkvörður ÍA í undanförnum leikjum eftir að Logi Mar Hjaltested (2005) var lánaður til Kára.

Skagamenn vonast til að fá niðurstöðu í markmannsmálin sín fljótlega því framundan er leikur gegn ÍBV klukkan 18:00 á morgun. Sá leikur fer fram á ELKEM-vellinum á Akranesi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.