Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
   mið 20. maí 2026 23:55
Ívan Guðjón Baldursson
Alli Jói: Ekki gleyma að þær eru Íslandsmeistarar
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari Þórs/KA var svekktur eftir tap á heimavelli gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í Bestu deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  3 Breiðablik

Blikar skoruðu þrjú mörk á 15 mínútna kafla til að innsigla sigurinn í síðari hálfleik. Lokatölur 1-3 og er Breiðablik með fullt hús stiga eftir fimm umferðir á meðan Þór/KA situr eftir með svo lítið sem tvö stig.

„Mér fannst við byrja vel og svo jafnaðist leikurinn svoldið út. Bæði lið fengu góð færi í fyrri hálfleik til að komast yfir og undir lok hálfleiksins þurftum við að þjást svolítið en við stóðum það af okkur. Við byrjuðum seinni hálfleikinn af krafti en eftir að þær skora brotnum við of auðveldlega og því fór sem fór," sagði Alli Jói eftir lokaflautið.

„Breiðablik er frábært lið með hraða og beinskeytta leikmenn sem eru sífellt að ógna bakvið varnarlínuna. Við gerðum vel að verjast þeim í fyrri hálfleik en eftir fyrsta markið brotnuðum við aðeins og þær gengu á lagið. Við skulum ekki gleyma því að Breiðablik eru Íslandsmeistarar og þær eru mjög góðar."

Þór/KA heimsækir Fram í botnslag deildarinnar næsta mánudag og tekur svo á móti Víkingi R. í lok mánaðar í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.

   20.05.2026 23:39
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur

Slapp
banner
banner
banner