Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
banner
   mið 20. maí 2026 21:30
Snæbjört Pálsdóttir
FH svaraði áfallinu með stórsigri: Þessi leikur var fyrir Kötlu
Kvenaboltinn
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir bar fyrirliðabandið með stolti þegar FH vann sterkan 3-0 sigur á ÍBV.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir bar fyrirliðabandið með stolti þegar FH vann sterkan 3-0 sigur á ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH sýndi styrk sinn og samstöðu þegar liðið lagði ósigrað ÍBV að velli, 3-0, í fimmtu umferð Bestu deildarinnar í kvöld. 

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir bar fyrirliðabandið í kvöld og var stolt af viðbrögðum liðsins en það var mikið áfall fyrir þær að missa Kötlu Maríu Þórðardóttur sem sleit krossbönd gegn Stjörnunni.

„Bara ánægð að halda hreinu, fyrst og fremst. Ég er bara ótrúlega stolt af stelpunum sem stigu upp þennan leik og að hafa skorað þrjú mörk,“ sagði Andrea eftir leik.


Lestu um leikinn: FH 3 -  0 ÍBV

FH konur fylgdu leikplaninu nánast fullkomlega að hennar sögn.

„Við bara fylgdum leikplaninu sem við lögðum upp fyrir leik bara rosalega vel og það gekk upp. Við héldum í boltann og vorum rólegar. Það gekk eiginlega allt upp sem við lögðum upp með.“


Mikið högg fyrir FH að missa Kötlu Maríu út tímabilið en Andrea segir hópinn hafa sameinast eftir fréttirnar.


„Það var náttúrulega ákveðið áfall fyrir allt liðið og ömurlegt að missa leikmann eins og Kötlu. Hún er bara leiðtogi í öllu og var bara búin að vera geggjuð. Ömurlegt að missa hana en aftur á móti þá stigu stelpurnar inn í þann stað fyrir Kötlu.“

„Okkur langaði svolítið að gera þetta fyrir Kötlu. Þessi leikur og þeir leikir sem munu koma, verða svolítið fyrir hana.“


Ungir leikmenn FH fengu stór hlutverk í kvöld og stóðu sig vel, þar á meðal þær Ingibjörg og Anna Heiða.


„Það er náttúrulega bara ótrúlega gott og ég treysti þeim bara vel fyrir það verkefni sem þær eru að fá. Það er ekki einfalt að koma inn og sérstaklega að fylla í skarðið fyrir Kötlu.“


„Við vitum að þetta er ekki einfalt en þær gerðu þetta bara ógeðslega vel og ég er sjúklega stolt af þeim. Þær eru bara að fara byggja ofan á þetta.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
banner