Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu valdi lokahóp fyrir HM á dögunum og var ýmislegt sem kom á óvart.
Joao Pedro, Andrey Santos og Thiago Silva voru óvænt ekki valdir í hópinn þar sem Ancelotti kaus að velja frekar Endrick, Danilo Santos og Roger Ibanez.
Ancelotti valdi goðsögnina Neymar í lokahópinn en hann er 34 ára gamall og hefur verið að glíma við erfið meiðslavandræði síðustu ár.
„Neymar verður mikilvægur leikmaður fyrir okkur á HM. Við erum búnir að fylgjast mjög náið með honum allt árið og hann hefur verið að gera magnaða hluti síðustu mánuði. Hann er að nálgast mjög gott form og getur reynst afar mikilvægur í sumar," svaraði Ancelotti þegar hann var spurður út í valið á Neymar.
Neymar leikur með Santos í heimalandinu og er með sex mörk og fjórar stoðsendingar í síðustu 15 leikjum eftir hnémeiðsli.
Hann var líka í stuði fyrir áramót þar sem hann skoraði fimm mörk og gaf eina stoðsendingu í fjórum síðustu leikjunum fyrir hnémeiðslin.
„Neymar hefur sömu skyldur og hlutverk og hinir 25 leikmenn hópsins. Hann gæti spilað eða ekki. Hann gæti byrjað inná vellinum eða á bekknum. Hann er á sama stað og aðrir leikmenn hópsins og mun einungis spila ef hann á það skilið.
„Neymar kemur inn í klefann með jákvæða orku, leikmenn landsliðsins þekkja hann og elska alveg eins og stuðningsmennirnir. Ég kalla hann upp í landsliðshópinn útaf því að ég held að hann geti gefið okkur eitthvað á HM í sumar. Ég var ekki undir neinni pressu að velja hann, þetta er 100% mín ákvörðun."
19.05.2026 08:00
Joao Pedro með yfirlýsingu - Ancelotti sorgmæddur




