Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 17:30
Kári Snorrason
Arsenal verðlaunar Arteta með nýjum samningi
Mynd: EPA
Arsenal er sagt ætla að verðlauna Mikel Arteta með nýjum samningi eftir að hann batt enda á 22 ára bið félagsins eftir Englandsmeistaratitlinum.

Núverandi samningur Arteta rennur út eftir eitt ár en enskir miðlar greina frá því að nýi samningurinn myndi gera hann að einum launahæsta stjóra heims.

Arsenal varð Englandsmeistari í gær eftir að Man City gerði jafntefli við Bournemouth. Liðið mætir Crystal Palace um helgina og lyftir bikarnum á Selhurst Park.

Eftir slétta tíu daga mætir svo liðið ríkjandi Evrópumeisturum PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Puskas Arena í Búdapest.
Slapp
banner
banner