Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 20. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
McFarlane: Gátum ekki haldið sama orkustigi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bráðabirgðaþjálfarinn Calum McFarlane stýrir Chelsea út tímabilið og svaraði spurningum eftir mikilvægan sigur gegn Tottenham í gærkvöldi.

Chelsea vann 2-1 á heimavelli og situr núna í bílstjórasætinu í baráttunni um eina Sambandsdeildarsæti deildarinnar.

Lærlingar McFarlane eiga þar að auki möguleika á að stökkva upp um eitt sæti og tryggja sér þannig þátttökurétt í Evrópudeildina. Til að komast í Evrópudeildina þarf Chelsea að sigra Sunderland á útivelli og vonast eftir hagstæðum úrslitum í leik Brighton gegn Manchester United þegar lokaumferðin fer fram á sunnudag.

„Þetta var ljótur leikur á köflum en ég er stoltur af strákunum fyrir að hafa verið grimmir og haldið forystunni til leiksloka. Við vissum að við gætum ekki haldið sama orkustigi og þeir út leikinn eftir að við spiluðum úrslitaleik um helgina," sagði McFarlane, sem gerði fjórar breytingar á byrjunarliðinu eftir naumt tap gegn Manchester City í úrslitaleik FA bikarsins um helgina.

„Við sýndum seiglu og baráttuanda til að standa uppi sem sigurvegarar gegn ferskum og metnaðarfullum andstæðingum sem höfðu fengið næga hvíld fyrir leikinn. Við erum ánægðir að vinna á heimavelli eftir slæmt gengi í síðustu leikjum."

   19.05.2026 21:13
England: Chelsea vann Tottenham sem gæti fallið á sunnudag

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner