Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
banner
   mið 20. maí 2026 22:17
Helgi Inguson
Anton Ingi svekktur þrátt fyrir fyrsta stigið
Kvenaboltinn
Anton segir að nú sé stigasöfnunin hafin, nú komi þær sterkar á móti Þór og stefni á fleiri stig
Anton segir að nú sé stigasöfnunin hafin, nú komi þær sterkar á móti Þór og stefni á fleiri stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, var svekktur eftir markalaust jafntefli gegn Val í 5. umferð Bestu deildar kvenna. Með jafntefli náði Fram í sitt fyrsta stig á tímabilinu.

„Svekktur, svekktur að ná ekki í þrjú stig. En jafnframt ánægður með að hafa brotið múrinn með því að ná í stig," sagði Anton eftir leik.

Lestu um leikinn: Valur 0 -  0 Fram

„Heilt yfir fannst mér við mjög góðar. Fengum á okkur fá færi, í fljótu bragði man ég ekki eftir einhverju hættulegu sem við fengum á okkur. Sóknarlega vorum við að fá fín færi en sama sagan, nýtingin ekki nægilega góð," sagði Anton um frammistöðu liðsins.

Ekki var mikið um opin marktækifæri í leiknum en Fram fékk þó fjölda hornspyrna.

„Okkur vantar að ná inn mörkum úr föstum leikatriðum. Það tókst í bikarnum. En núna á 91. mínútu, við verðum bara að vera grimmari inn í teignum til þess að skila þremur stigum."

Fram byrjaði leikinn af krafti og voru töluvert betra liðið á vellinum fyrstu tuttugu mínúturnar

„Við töluðum um það að þetta hefði verið smá kaflaskipt hjá okkur áður og við mætt frekar seint til leiks. Þannig að við töluðum um að mæta frá fyrstu mínútu og reyna að klára þetta í 90 mínútur. Sem við gerðum en það vantaði markið," sagði Anton að lokum.
Slapp
banner
banner